Góðir hálsar
Margt búið að gerast síðan síðast…hmm hvar skal byrja…
Það er ennþá ofsaofsa gaman hjá mér, þó núna standi fyrir dyrum ritgerðarskil, er að skrifa ritgerð um dreka!! spennandi finnst ykkur ekki;) (Unnur ég veit þér finnst það ekki;))
Pub Crawl var tekið með trompi á fimmtudaginn síðasta, ég hélt áfram módelkennslu minni og verð ég að segja að Michael sé besti nemandinn minn eins og stendur, þarna tók hann ruddahissa:D

Svo fékk ég líka að mála John og gera hann svoldið sætan sem ég hafði mjög gaman að. Hér má sjá afraksturinn. Já kannski rétt að taka það fram að John er vinur minn frá Kanada, frábær strákur alveg, næstum jafn klikkaður og ég;) Lekkert já!

Seinna um kvöldið gerðumst við, John og Cynthia (frá Texas) svoldið hot and heví í rólunni…..

EN nóg um það, eftir eins og 20 mínútna blund þá nóttina tók við rútuferð til Stansted flugvallar þaðan sem leiðin lá til DUBLIN!!! við fórum 8 saman, ég, John, Cynthia, Glennis (USA), Kaitlin (USA), Joey(Singapúr), Suzanne (Holland) og Elaine (USA)…semsagt 7 stelpur og John:) Í stuttu máli sagt var rosalega gaman og Dublin er hin krúttlegasta borg þó að við höfum verið sammála um að fólkið hafi ekki beint heillað okkur uppúr skónum. Lentum ansi oft á dónalegu afgreiðslufólki….
Við skoðuðum auðvitað allt það helsta svo sem Guinnes verksmiðjuna og auðvitað varð maður að smakka….hreint ekki eins slæmt og mig minnti en get ekki sagt að ég sé æst í hann…ég á nú samt þetta glas ennþá…..;)

Það var lítið sofið sökum flugferða á skrítnum tímum enda svaf ég í 14 tíma aðfaranótt mánudags! very næs! Svo var lestarkerfið í algjöru fokki á sunnudaginn þegar við vorum á leiðinni heim svo það tók helmingi lengri tíma en venjulega að komast! eeen allt saman þess virði fyrir Dublin beibí:)
Nú er annars síðasta vikan í Septembernámskeiðinu mínu svo vonandi verða 6 einingar í höfn í vikulok:D þarf bara að klára eina litla ritgerð…..hmm já ég á víst að vera að skrifa hana núna…og svo búið:) Á föstudaginn er það svo bara Köben að hitta Önnsu og Telmu!! get ekki beðið!
Ég ætla að enda þetta á lítilli sögu sem fjallar um mig sjálfa og hvað ég er ógisslega kúl!…:)
Í gær fór ég út að hlaupa, vissi ekkert hvert ég ætti að hlaupa svo ég hljóp bara af stað útí buskann. Hljóp upp um hæðir og hóla inn í skóg og hvað eina. Villtist smá í skóginum , missti áttaskynið (surprisesurprise) var orðin pínu örvæntingarfull á tímabili eeeen allt hafðist að lokum og ég var komin (að ég hélt) á beinu brautina heim.
Þá kem ég allt í einu að girðingu. Sveitabarninu mér fannst það nú ekkert tiltökumál og ákveð bara að klifra yfir helvítis girðinguna, það hljóti að vera styttri leiðin!!
Mæta mér þá ekki bara massívir lestarteinar!! Sjitt hugsa ég, hér á ég ekki að vera!! en ákveð samt að hlaupa bara yfir teinana og komast hinumegin.
Mætir mér þá ekki önnur, og öllu stærri girðing, ca 2ja metra há með mörgum lögum af gaddavír efst!
Fjandinn hvað er ég búin að koma mér í! labba meðfram girðingunni, mæti múslimakonu á leiðinni (sem var hinumengin við girðinguna) og hún horfði á mig eins og ég væri hálfviti.
Ég var í alvöru komin á fremsta hlunn með að reyna að klifra yfir þegar ég sé hálfgert gat í girðingunni, mér til mikillar gleði, treð mér þar í gegn, festist, ríf buxurnar (ekki á rassinum eða neitt sem betur fer;)) en kemst í gegn! JESS! nú er leiðin greið heim! þetta hlýtur að vera búið núna…
Ekki alveg, eftir þetta tókst mér líka að festast inní einhverju porti og þurfti að taka risahring!
En engar áhyggjur ég komst heim heil á höldnu að lokum:D
Þetta tekst held ég engum nema mér:D
Ég þarf greinilega manninn með mér til að fara út að hlaupa:)
Jæja ritgerðin kallar:D ætli ég láti ekki næst í mér heyra eftir Köben.
En auðvitað má alltaf hringja í mig;) og skylda að kvitta..ALLIR…mér finnst voða gaman að sjá hverjir koma hingað:)
Nördakveðjur
Ösp awesome:D

